Fróðleikur
Tæringarvarnir – upplýsingar sem sparað geta stórfé
Tæring kostar útgerðir gífurlega fjármuni á ári hverju. Í skipum er tæringin mest undir sjólínu og því lítt sýnileg nema í slipp. Algengt er að skip komi upp sinklaus að hluta eða öllu leyti: fórnarskautin á botninum eru uppurin, skrúfan tærð og jafnvel botnsuður líka. Viðgerðir á skrúfum eru mjög dýrar og sama gildir um botninn, því dýrt er að skipta um botnplötur og endurnýja suður. Útgerðir reyna að halda skipum sínum sem lengst á sjó og því skiptir enn meira máli en áður að tæringarvörnin sé sem fullkomnust. Með nútímatækni má verja stál undir sjólínu nánast að fullu gegn tæringu.
Tæringarvörnum má í grundvallaratriðum skipta í tvo flokka: annars vegar að útiloka vatn og súrefni með málningu, hins vegar að leiða rafstraum að málminum og hægja þannig á tæringarferlinu (bakskautsvörn, e. cathodic protection). Reynslan sýnir að blanda beggja aðferða gefur bestan árangur og er hagkvæmust.
Hvað ræður líftíma fórnarskauta?
Mönnum vefst gjarnan fyrir hvers vegna fórnarskaut á botni endast mislengi. Skipið er sinkað jafn mikið og áður, en kemur samt upp sinklaust með skemmdan botn og skrúfu. Flestum er ljóst að útleiðsla getur valdið því að skaut klárast fyrr, en fleiri þættir hafa áhrif, t.d. ef óvenju mikið af botnmálningunni flagnar af.
Til að verja stál í sjó þarf ákveðið magn af rafstraumi á hvern fermetra. Straumþörfin fer eftir ástandi málningar og straumhraða sjávar, þ.e. siglingarhraða. Ending fórnarskauta fer því að verulegu leyti eftir því hversu góð botnmálningin er og við hvaða aðstæður skipið er gert út. Skrúfan sker sjóinn langhraðast og er óvarin af málningu, og því þarf hún mestan straum.
Hvernig er fjöldi fórnarskauta ákveðinn?
Almennt er miðað við 15–30 mA á hvern fermetra undir sjólínu á vel máluðum botni, en ber skipsbotn þarf 100–300 mA/m². Ef botn er málaður við erfiðar aðstæður og málningin tollir illa geta skautin því eyðst á mun styttri tíma en venjulega.
Fórnarskaut virka svipað og rafhlöður sem gefa stöðugt frá sér straum í samræmi við stærð sína. 3,2 kg álskaut (2,6 kg nettó) af algengri gerð gefur frá sér allt að 500 mA. Hvert kíló af álskauti inniheldur um 2.700 amperstundir, svo slíkt skaut getur gefið 0,5 A í um 19 mánuði við eðlilegar aðstæður. Álskaut mynda oxunarhúð sem takmarkar strauminn og því er óhætt að setja ríflegt magn af þeim á botninn. Algengt er að setja álskaut sem gefa allt að 60 mA/m² á íslensk togskip til að ná allt að tveggja ára endingu. Einnig er mikilvægt að miða stærð skautanna við áætlaðan líftíma, því mörg lítil skaut gefa meiri straum en færri stór skaut af sömu þyngd og endast skemur. Of mörg sinkskaut geta hins vegar valdið ofvörn, flögnun botnmálningar og tæringu.
Tæringarvörn fyrir sjótanka
Mikilvægt er að huga einnig að tæringarvörnum í sjótönkum. Þörfin er minni en utan á skrokknum en getur engu að síður verið veruleg ef tankarnir eru illa varðir. Því er ástæða til að hafa fórnarskaut í öllum sjótönkum og fylgjast með þeim í hverjum slipp.
Tæringu má mæla
Til eru einfaldir mælar sem sýna hversu virk tæringarvörnin á botninum er. Litlum nema (viðmiðunarskauti) er sökkt í sjóinn við skipshliðina og spennumunurinn milli nemans og skipsins mældur með nákvæmum spennumæli. Þannig má sjá með mikilli nákvæmni hvort vörnin virkar og hversu mikil hún er. Það þarf því ekki að vera nein óvissa um virkni tæringarvarnar.
Hvers vegna tærast skipsskrúfur?
Skrúfan getur þurft allt að 1.000 mA/m² og líftími hennar fer að miklu leyti eftir því hversu vel hún er varin. Vörnin ræðst alfarið af því hversu gott rafsambandið er milli skrúfuáss og skrokks. Ásinn á að fljóta á olíufilmu í legunum og því er sambandið oft ótryggt, ekki síst þegar legurnar hafa slípast til. Tærð skrúfa getur því verið merki um gott ástand á skrúfuáslegum!
Hvað er til ráða?
Lykilatriði er að skrúfan sé alltaf í góðu rafsambandi við skrokkinn. Besta leiðin er sleituhringur á skrúfuásnum: kopargjörð með þykku silfurlagi og burstahaldari með silfur/grafít-burstum. Rafmótorkol beint á ásinn duga ekki, því viðnámið í þeirri tengingu er of mikið. Án sleituhrings mælist oft 200–300 mV spennumunur milli skips og skrúfu. Með ófullkomnum sleituhring næst hann niður í 100–250 mV, en með silfursleituhring og silfur/grafít-burstum niður í um 10 mV. Þetta sýnir hversu miklu máli skiptir að velja rétta gerð sleituhrings og bursta.
Kavitation og tæring
Algengt er að menn telji skemmdir á skrúfu stafa eingöngu af kavitation (holrýmismyndun) og að ekkert sé við því að gera. Reynslan sýnir að nægileg bakskautsvörn á skrúfunni, frá skautum eða rafrænni tæringarvörn, getur dregið verulega úr samverkandi kavitations- og tæringarskemmdum.
Öryggi og líftími
Fórnarskaut hafa takmarkaðan líftíma og því er lykilatriði að fylgjast vel með ástandi þeirra. Með tímanum eyðast skautin og afköst þeirra dvína, en á sama tíma eykst þörfin fyrir vörn eftir því sem botnmálningin versnar. Einnig kemur fyrir að skaut eyðast ekki vegna rangrar málmblöndu og veita því falskt öryggi. Með því að mæla tæringarvörnina reglulega og bæta við skautum eftir þörf má minnka viðhaldskostnað verulega.
Rafræn tæringarvörn
Tæknilega fullkomnasta tæringarvörnin sem völ er á er sú rafræna (Impressed Current Cathodic Protection, ICCP). Þar er þörfin fyrir vörn stöðugt mæld og straumnum stýrt í samræmi við hana. Búnaðurinn samanstendur af tölvustýrðu stjórntæki með innbyggðum straumgjafa, rafskautum, nemum og sleituhring. Stjórntækið er búið viðvörunarkerfi sem gerir viðvart ef vörnin fer undir eða yfir innstillt gildi. Fjöldi íslenskra skipa er með slíkan búnað, m.a. Dettifoss sem er með rafræna tæringarvörn frá Cathelco. Nánar um ICCP →
Gróður- og tæringarvörn fyrir sjólagnir
Hindra má skelja- og gróðurmyndun í sjólögnum og draga verulega úr tæringu með kopar- og álskautum í sjóinntökum eða sjósíum og stjórntæki sem stýrir straumnum. Koparinn hindrar að lífverur þrífist í lögnunum og álið myndar tæringarvarnarhúð innan á þeim. Nánar um MGPS →
Greinarhöfundur er framkvæmdastjóri Stálvéla ehf., sem sérhæfir sig í tæringar- og gróðurvörnum fyrir skip.