Cathelco® MGPS

Gróðurvörn og tæringarvörn fyrir sjólagnir

Skeljar og gróður í sjólögnum þrengja rör, stífla síur og kæla og auka viðhaldskostnað. Gróðurvörn frá Cathelco kemur í veg fyrir þetta, ver lagnirnar gegn tæringu og hefur verið notaður í íslenskum skipum í áratugi.

Helstu kostir

  • Hindrar skelja- og gróðurmyndun í sjókistum, sjósíum, kælum og lögnum
  • Dregur verulega úr tæringu í sjólögnum
  • Lengir líftíma kæla, röra og sjóloka
  • Minnkar viðhald og óvænt stopp og getur fækkað slippferðum vegna hreinsunar
  • Sjálfvirkur búnaður sem þarf lítið eftirlit

Hvernig virkar búnaðurinn?

Búnaðurinn samanstendur af kopar- og álskautum, sem sett eru í sjókistur eða sjósíur, og sjálfvirku stjórntæki sem stýrir rafstraumi út á skautin. Koparskautin gefa frá sér örlítið magn kopareinda sem berast með sjónum um allt lagnakerfið. Þær gera lífverum ókleift að setjast að í lögnunum. Áleindirnar mynda tæringarvarnarhúð innan á lögnunum. Koparmagnið er svo lítið að það hefur ekki áhrif á fiskvinnslu eða ferskvatnsframleiðslu um borð.

Kerfinu er stýrt með Quantum stjórntæki með snertiskjá, sjálfvirkri gagnaskráningu og RS485-tengingu. Stjórntæki MGPS – Quantum →

Fyrir skip með box kæla er til sérstök útfærsla með koparskautum undir kælunum. Gróðurvörn fyrir box kæla →

Reynsla á Íslandi

Stálvélar hafa selt MGPS-búnað frá Cathelco í 203 skip. Hann hefur reynst mjög vel við íslenskar aðstæður. Reynslan sýnir að aðferðin er áhrifaríkari gegn skelja- og gróðurmyndun en eiturefni. Á heimsvísu eru skip og kafbátar meira en 40 sjóherja búnir MGPS frá Cathelco (heimild: evac.com/cathelco).

Sjá skip með búnað frá Stálvélum á síðunni Tilvísanir. →

Reglur og umhverfi

Frá september 2015 þurfa eigendur skipa sem sigla á evrópsku hafsvæði að tryggja að MGPS-búnaður uppfylli sæfivörureglugerð ESB (nr. 528/2012). Cathelco® er eitt fárra fyrirtækja á lista skv. 95. grein reglugerðarinnar, opinberri skrá Efnastofnunar Evrópu (ECHA) yfir viðurkennda birgja virkra efna. Ósvikinn Cathelco-búnaður og -skaut eru því örugg leið til að uppfylla reglurnar. (Heimild: evac.com/cathelco)

Ábending: MGPS + DragGone

MGPS ver sjókistur og lagnir, DragGone ver skrokkinn. Saman ná kerfin yfir bæði innra og ytra yfirborðið undir sjólínu.

Algengar spurningar

Hvað er gróðurvörn?

Gróðurvörn fyrir sjólagnir (MGPS) kemur í veg fyrir að skeljar og gróður setjist að í sjókistum, sjósíum, kælum og lögnum. Cathelco-búnaðurinn notar kopar- og álskaut sem sett eru í sjókistur eða sjósíur og sjálfvirkt stjórntæki sem stýrir rafstraumi út á skautin. Kopareindirnar gera lífverum ókleift að setjast að í lögnunum og áleindirnar mynda tæringarvarnarhúð innan á þeim.

Hentar búnaðurinn skipinu mínu?

Já, búnaðurinn er stærðarvalinn eftir fjölda sjóinntaka og sjóstreymi, frá smærri bátum upp í stór skip.

Hvað endast skautin?

Það fer eftir stærð skauta og streymi. Við stillum endingu að slipptímabilum skipsins.

Hvað kostar þetta?

Verðið fer eftir stærð skips, fjölda sjóinntaka og streymi. Sendu okkur upplýsingar og fáðu tilboð.

Fáðu verðtilboð fyrir þitt skip

Sími 554 5683 · GSM 896 6005