Cathelco® · Evac

Gróðurvörn, tæringarvörn og Evac-kerfi fyrir skip

Ráðgjöf, búnaður og þjónusta frá Cathelco® og Evac. Umboðsaðili á Íslandi síðan 1989.

Fiskiskip með Cathelco ICCP-kerfi

Cathelco-lausnirnar okkar

Skautar í sjóinntaki

Gróðurvörn fyrir sjólagnir (MGPS)

Kopar- og álskaut í sjókistum og sjósíum halda sjólögnum og kælum lausum við skeljar og gróður og draga úr tæringu. Stálvélar hafa selt MGPS-búnað í 203 skip.

Skýringarmynd af Quantum ICCP-kerfi

Rafræn tæringarvörn (ICCP)

Tölvustýrð tæringarvörn fyrir botn og skrúfu sem mælir þörfina stöðugt og stillir strauminn eftir henni. Hún kemur í stað fórnarskauta.

DragGone sendar frá Cathelco

Hljóðbylgju-gróðurvörn – USP DragGone™

Ný kynslóð hljóðbylgjuvarnar frá Cathelco. Sendarnir eru festir innan á skrokkinn, án suðu eða borunar. Búnaðurinn ver skrokk og botnmálningu gegn gróðri, ekki síst þegar skipið liggur í höfn.

Afsöltunartæki (Cathelco Seafresh)

Sjálfvirk afsöltunartæki sem framleiða ferskvatn úr sjó með öfugri himnusíun (reverse osmosis). Skipið verður óháðara vatni úr landi.

USP DragGone™

Hrein botnmálning, líka í höfn

Gróður sest helst á skip þegar það liggur kyrrt. USP DragGone™ sendir hljóðbylgjur eftir skrokkplötunum og truflar landnám lífvera á botnmálningunni. Sendarnir eru settir innan frá og krefjast hvorki suðu, borunar né slipps.

Kynntu þér DragGone
DragGone sendar frá Cathelco
Evac Optima lofttæmisalerni á vegg

Evac lofttæmisalerni – minna vatn, minni lagnir, minni lykt

Evac lofttæmisalerni nota aðeins 1,2 lítra af vatni í hverja skolun, allt að 90% minna en hefðbundin salerni. Lofttæmiskerfið flytur skólpið um grannar lagnir sem þurfa ekki halla, sparar pláss og þyngd um borð og heldur lykt í lágmarki. Stálvélar eru umboðsaðili Evac á Íslandi og þjónusta allan Evac-búnað.

  • 1,2 l á skolun
  • allt að 90% minna vatn
  • enginn halli í lögnum
Kynntu þér lofttæmisalerni

Af hverju Stálvélar?

  • Sérhæfing síðan 1986. Gróður- og tæringarvarnir og Evac-kerfi fyrir skip eru okkar sérsvið.
  • Beint samband við framleiðandann. Umboðsaðili Cathelco á Íslandi síðan 1989 og nú einnig Evac. Við þjónustum allar vörur frá Evac.
  • Vélfræðingur sem talar þitt mál. Einar B. Ísleifsson vélfræðingur hefur áratuga reynslu af búnaði í íslenskum skipum.

Í tölum

  • 1986Stálvélar stofnaðar
  • 1989umboðsaðili Cathelco
  • 203skip sem Stálvélar hafa selt MGPS-gróðurvörn í

Treyst af íslenskum útgerðum og Landhelgisgæslunni

Meðal skipa með búnað frá Stálvélum eru Brúarfoss, Dettifoss, varðskipið Freyja, Sigurður VE, Venus NS, Víkingur AK, Barði NK, Heimaey VE, Sólborg RE 27 og Júlíus Geirmundsson ÍS.

Sjá fleiri tilvísanir →

Fáðu verðtilboð fyrir þitt skip

Verð fer eftir stærð skips og þeim búnaði sem þarf. Sendu okkur upplýsingar um skipið og við gerum tilboð.