Fróðleikur

Mæling á hvaða skaut séu kopar, ál eða járn

Til að vita hvort skaut sé koparskaut (gróðurvörn) eða tæringarvarnarskaut (ál eða járn) má mæla spennuna frá skauti til jarðar. Til að mælingin sé gild má ekki hafa verið spenna á skautinu í sólarhring eða meira. Skaut í sjó gefur frá sér spennu, svipað og batterí, vegna spennumunar miðað við stál. Sjá töflu hér að neðan. Þetta eru spennumælingar í millivoltum.

Spennutafla

Gróðurvarnar- (A/F) eða tæringarvarnarskaut (A/C)Engin fórnarskautFórnarskaut í sjókistum
MSZnAl
Cu (kopar)250–400 (+)650–900 (+)600–850 (+)
Al (ál)100–250 (−)100–200 (+)0
Fe (járn)0–150 (+)300–400 (+)200–400 (+)

Gildin eru í millivoltum (mV). MS = mild steel (stál), Zn = sink, Al = ál.

Úr handbók Cathelco

Taflan hér að ofan sýnir áætlað bil í millivoltum fyrir spennuna milli skauts og jarðar. Ef fórnarskaut eru í sjókistunni, eða jafnvel nálægt henni á skrokknum, gilda síðustu tveir dálkarnir; annars sýnir fyrsti dálkurinn efri mörk væntanlegra gilda. Þegar engin fórnarskaut eru í sjókistunni gildir: því betri sem málningarvinna og tæringarvörn ytri skrokksins er, því nær verður gildið hægri tölu í fyrsta dálki töflunnar. Mjög lítill spennumunur bendir líklega til þess að samfella hafi rofnað eða einangrun í hringrásinni bilað, nema þegar skaut og skrokkur eða fórnarskaut eru úr sama efni, eða mjög nálægt hvort öðru í galvanísku röðinni. Spennumælingar nýtast einnig til að staðfesta að kaplar fyrir gróðurvörn og tæringarvörn hafi ekki verið víxlaðir, sem skiptir máli þegar mismunandi straumur er stilltur á þá.